Can i play with madness?

13.2.2008 05:14:37 / addiþ

Spenastaðabræður

..by Addi

Sumarsaga Barnana  Eftir Trond Tolstoj.

Fyrst af öllu er rétt að kynna til skjalanna persónur og staðaraðstæður.
Jón Skeggjason.
Guðríður Greipsdóttir Kona hans.
Spindill Jónsson 30 ára sonur þeirra.
Freyr Jónsson 22 ára sonur þeirra.
Sigurður Skeggjason bróðir Jóns.

Þessi ektafjölskylda býr að bænum Spenastöðum í Saurdal.
Það skal tekið fram að þetta er langinnsti bærinn í dalnum þannig að samgöngur eru stopular en frægir eru þó spenastaðabændur fyrir sérstaka notkun á íslensku og er talin ástæðan fyrir því mikill bókakostur.

Fyrsti kafli:
Að Færast í fangið......

Við erum stödd í fjárhúsinu á spenastöðum þar eru við dagleg störf Jón,Spindill og Sigurður.

Jón: Réttu mér nú galvenisseraða dulluspaðann spindlingur og vertu hvatviss í þeirri sökinni.
Spindill: Þú skalt nú vera alveg dauðrólegur faðir sæll,ekki er ég mærður af þeim hæfileik að hlaupa til og dauðhreinsa á þér garnaendana.
Sigurður: Ho ho ekki er ég nú frá því að þeir félagar Stalín og Neró mundu slíta hásin að heyra til ykkar feðga.
Jón: Siggi Stólpípa he he það væri nú réttnefni á þig bróðursræksn.
Sigurður: Menn voru nú kjölþvegnir af yfirboðurum sínum í frans fyrir þess háttar orðabrúk.

Inn kemur Húsfreyja.
Guðríður: Jæja menn mínir nú er Hallgerður kjaftstopp ekkert er til matarlegt á Spenastöðum þannig að ef þið ætlið ekki að borða fíflagraut og spenasteik þá legg ég það til að þið deyðið fyrir mig einhvurja skepnu og verðið snöggir að.
Spindill: Það vantar ekki varaflauminn hvernig væri nú að þú hysjaðir upp mjólkurgeymslurnar og gerðir eitthvað sjálf á kotinu.
Guðríður: Ég hélti nú að nógum guðsóttanum hefði ég troðið í bris þitt sonsfjendlingur.
Jón: Svona hættið nú áður en ég sendi hrútinn hér í afturhlutann á ykkur.
Siggi: Ho þetta minnir mig nú á stöku sem ég samdi um árið.
Ef ekki er til grautarslumma.
Og kotið allt í spreng.
Nei er ekki þarna gömul lumma.
Þetta kalla ég góðan feng.

Spindill: Jæja nóg komið kremlverjar grípum til vopna og sprettum upp einhverja skepnuna ekki mun það viðgangast að hér sé etinn fíflagrautur ellegar randaflugusoppa.
Jón: Það væri nú réttast að sendla eistun á þér til föðurkofans.
Sigurður: Það ríður nú ekki við einteyming vitleysan sem leysist upp í loftið hér í saurdalsbotni , ég er farinn út að tyggja tað
Spindill: Já standi það í þér óþurftarrefur.
Guðríður: Jæja ekki verður dýr vísan sem verður kveðin um karra þá er búa á þessu horkotinu.
Jón: Spinnum nú ekki þennan fíflavef.allir inn í hús í kruðerísveislu

Annar kafli sumarsögu Barnana eftir H.C kormáksen.

Að hnýta skóþveng með sanseraðu baggasnæri.....

Við erum stödd í stofunni á Spenastöðum það er liðið á kvöld og vinnufólk hvílir bein.

Jón: Ja hér ef hann svíkur mig ekki skógarþrestlingurinn þá verður þetta vott og sprettumikið sumar.
Freyr: Það er nú einu sinni þannig að sannspásemi þín er nú ekki til að hesthúsa með þegjandi þurrki man varla betur en vetrartíðin hafi algerlega farið út um annað nýrað hjá þér faðir.
Spindill: Hvernig væri nú að ég smellti fírtommu saum á kaf í sleffærin á þér þetta er ekkert nema kalið kál sem vellur út úr þér aumþurftareymingi.
Guðríður: (Er að þæfa ull) Kalið og ekki kalið menn hafa nú ekki verið frægir fyrir það hér á Spenastöðum að ríða berbakt er það kemur að veðurfræði man ekki betur en hann Funljótur langafi þinn hafi verið endemaður um allan dal fyrir sannsögli í þeimm kreddunum.
Sigurður: Fræg er nú staka eftir þann mektarmann.
Að kári sé mættur tel ég grunnt
Og oflæti marið í bögur
Og kavalinn geri ég kunnt
Er kýrin mín gengur um mögur.


Jón: Ussumfrigg hefur stóra táartetrið einhverju sinni sviklegið mig er kemur að rýning í veðrið man ekki betur en hér hafi vofað yfir stórhríðarský eftir að ég kól  svo eftirminnilega um árið.
Spindill: Ef ljárinn hér á stássgólfi væri ekki svona egglaus mundi ég losa okkur við þá plágusendingu sem heilagrauturinn á þér er.
Guðríður: Ef þæfingur þessi verður mér ekki aldurtila þá sver ég það við Hriflujónas að enginn verður vísdómurinn skráður um ykkur Spenastaðabýlingsruma.
Freyr:Jæja þá er komið að samsöng um ingiríði og allir saman nú.

Góðan dag...

Hef ákveðið að birta þriðja kafla sumarsögu barnana eftir Þránd Laxnessson.

Að fjalla um fjall:

Við erum stödd í eftirleit á rollum í landi þeirra Spenastaðamanna.

Jón: Ef langatöngin svíkur mig ekki að sinni þá hefði ég hnotið um þá giskun að þetta lamb sé ekki sýlbitið framnagað og kýlt.

Spindill: Hvurslags húmbúkk og hafarí

Þetta gengur aldrei að finna skjátur þær sem þú hefur vanalið á snarrót og arfablöðum.

Sigurður: Dettur mér þá í hug vísuskrum.

Að lömbin séu ullarsprengd Og spikið af þeim seiðir Vekur hjá mér sýndarsvengd Þarmarnir verða reiðir.

Jón: Útvegs og afarkost ekki mun það ofsögum spýtt að þú sért bóndaefni mikið Spindill.

Spindill: ýfð er ekki vitleysa sú er úr munni þínum froðar að þú sért ekki fermdur af vígðum heiðingja.

Sigurður: Man einhver eftir öðrum eins kaleiksótta eins og umlykur þig jón bróðir,ef mig skelfir ekki þá ert þú ekki sá ektabúdropi sem móðir okkar ætlaðist af þér.

Jón: heyr á endemi gefin var þér ekki vitsprengja í vöggugjöf,ef lánoð leikur við okkur þá verðum við dauð úr vosverkun og heylausn áður en hanar vorir skríða undan eggjum.

Spindill: Hermt hef ég að þú sért ekki kynlífskýldur Jón frændi.

Fjórði kafli sumarsögu barnana eftir Víðir frá Lundi.

Að baula svo tekið sé eftir...

Heyskapur er í nándinni á Spenastöðum og eru menn ekki sammála með verkunaraðferðir.

Jón: Það get ég svarið við Guð og alla hans hunda og ketti að það verður ekki sprengt súrheysfreskingum á túnspeldum þeim sem ég hefi ræktsamað ölll mín tíðahvörf.
Spindill: Súrhey verður það og ég get samtengt allar þínar garnir og innyfli ef þú handsamar ekki frið á þverrifu þína.
Sigurður: Tatata dettur mér þá í hug staka.
Ef súrt verður tekið heyji
Mang og annað grafl
Það endar sjálfst að ég deyji
Með höfðið ofan í skafl

Jón: þetta gerir okkur nú ekki ríka að þú kveður slíkar ambögur og stafaþrugl.
Spindill: Svelti nú allar lýs á hári mínu,þið bræður gerið mig kaflýsugan og ekki er ég frá því að eistu mín hafi spýst upp til síns gamla heimamundar.
Jón:Ég tek ákvörðun um þetta punktur og amen að endemi.
Spindill:svelti allt sem ferðast fjórfóta ég lifi þá bara á speki ykkar bræðra.

Sjötti kafli sumarsögu barnana eftir Gunnar Hóseasson

Ekki er á allt kosið undir súðinni.

Erum við nú vitni að umræðum þeirra bræðra Spindils og Freys um kvennamál.

Spindill: Er ekki umsagt hér í sýslutetri að þú sért saurfenginn henni Sigmundu héraðsskassi Freyr sæll.
Freyr: Ekki held ég að þú eigir að kafalsbyla mikið Spindill hún er ekki sokkin til botns sú staðreynd að þú hafir verið fótgefinn af henni Spyrðu heklubrók man ekki betur en að Spörður faðir hennar hafi rekið kvíslaoddinn í neðri kinnarnar á þér ræfilssámur.
Spindill: Á þverrifu þína verður nú aldrei nælt heiðursmerki ekki frekar en á rassinn á  Göring um árið Ég heldi að þér standi ekki frekar en geltur hrútur bræðrarskemmd.
Freyr:Mani mani mó ekki ertu selluríkur ef þetta er staðreyndarstafur er þú þráfalt reynir að halda fram hér er ekki frá því að auðhumla mín hafi glott við aftari spena að heyra þvíumlíka lygaútferð.
Spindill: Ímyndun eða þrátefli ekki verður matnum skitið fyrr en í fulla hnefa.

Kemur þá ekki Sigurður askvaðandi

Sigurður: Dettur þá ekki fram staka ein.
Ef kvensur hér í sveit
fá ekki bein í göt
frygðast um eins og geit
Sem orðin er löt.

Spindill: Ja heyr á geðveiki.....Sjöundi kafli sumarsögu barnana eftir Birgir Skúlason.

Í slátrinu býr framtíðin.

Það stendur mikið til að spenastöðum og eru menn í óöa önn í sláturgerð og hrífuviðgerðum.

Jón: Samkenndin hér í slátrinu er svo svakafengin að ég missi munnvatn.
Spindill. Ekki get ég nú að því gert að ég verð alltaf svo graður er ég sé bala fullan af blóði.
Freyr:Það er nú ekki einleikið hvuslags hálfviti þú ert bróðir sæll ég man ekki eftir öðrum eins tottinræfling hér á slóðum.
Guðríður: Látið nú ekki sem flón þetta á að vera hátíðarstund og mæli ég með að menn elski frið og geri böndin beittari.
Spindill: Ingjaldsfíflið er sem nóbelsskáld við hlið þér móðir.
Freyr: hvar er nú galveniseraða skaptið sem ég hef svo oft rekist á hér í stássinu datt í hug að bekena hrífugrey úr því.
Spindill: þú gætir ekki skeint belju þó þú héldir í hala hennar.
Sigurður: Gírugur ertu Spindill Hvurnig var þetta nú með rúningsskæri þín hér um misserið ekki var það nú brúkug smíðavinna hjá þér.
Spindill: Vertu feginn að ég drekki þér ekki í balanum þvílík firra og uppspeningur færi þér nú vel að vera tungunni fátækari fasistafífl.
Jón: sonna nú verði svo vilji sem á jörðu sem himni.
Freyr: Ætlar þú nú að fara að guðrækjast á þessu síðustu tímum.
Spindill:Tek ekki þátt í þvílíkri skegglu ég er farinn í mitt fró að sinna mínu slátri.

8 Kafli sumarsögu barnana eftir Þorgrím Þráinsson.

Þetta er ekki herðatré, þetta eru ábrystir væna mín.

Á spenastöðum er gleði þar sem Spindill á afmæli og er bakkelsi og landi á borðum.

Spindill: Er ég nú ekki undraverður að endemum ekki man ég eftir öðrum eins tittlingasiggi eins og hér er lagt til bús,þú getur nú ekki verið alviðra móðir sæl að bera svona  í grugguga tjörnina.
Guðríður: Heyra nú í þér eg stóð upp undir svuntu í bakstri og síun í allan aftaninn og hóstaði lyftidrullu fram eftir næturtussu.
Jón: Tja landinn er að minsta kosti brúklegur mig verkjar um allar sinar af vellíðan.
Freyr: Marglyttubesefi það ertu faðir stalín.
Spindill: Brýgsl þetta er ekkert nema brýgsl þið standið hér og blásið úr rassi eins og hvurjir aðrir gapuxar og vansköpuð lömb á einum fæti.
Sigurður: Hemm get ekki falið það að ég sé að lamast eftir þvílíkt orðaskrum.
Spindill: Ja fari það í skíthúsið þessar kleinur eru sem hrossatað,djúpsteikt hrossatað.
Freyr: Það verður nú ekki falið frekar en afturhluti móður minnar að þú hafir innbyrgt reiðinar býrsn af þeirri fæðunni sá gangandi skítaklepri sem þú ert.
Spindill: Það er nú altalað um allan dal að þú hafir rennt niður tugi fylgna um síðasta sauðburð og ef þú ferð ég að rassskella aftur tungu þinni þá ranghvolfi ég á þér iðrunum það sver ég við sám.
Freyr. verði ykkur að svarta dauða Ég fer að ala manninn í fjósi voru.
Spindill: Já en vertu nú ekkert að slumma kýrnar þú veist þær eru afhuga þér ha ha.

Þá ku 9 kaflaskellirinn á borð borinn með hamsa og sultutaui
Semsagt 9.kafli sumarsögu barnana eftir Indriða á Fjalli.

Að berja fólk með augntóftum.

Erum stödd á Þorrablóti Saurælinga og eru Spenastaðamenn haukar í hvurju horni.

Spindill: Tja faðir sæll ekki er ég frábrugðinn þeirri staðreynd að hreyfð sé lifur mín og dingull af þeim mjöð sem þú braggaðir í hlöðulofti voru.
Jón: Já þetta er ekkert kálfasæði sem ég galdra fram eins og ég hefi aldrei gert annað.
Freyr: Glundur,þetta er glundur ég er að rembast eins og kálfur á lambi að koma þessum þverra niður já og fari það bara í gor.
Guðríður: þetta gerir mig allavega graða og þá er tilgangi í kot komið menn eru í hættu staddir það lekur niður safi líkt og í skepnustaðaá.
Spindill: Jæja ég er að spá að sprengja lag mitt við hana smelliríði frænku mína, ekki er mér til þessarar kuntu boðið, ekki frekar en hálfdauðum stelksunga.
Sigurður: Fellur þá ekki famundir þessi líka stakan.
Spýturnar sem liggja vestur undir vegg
Fara nú varla að fúna
Pikka nú svínfeita kellu á legg.
Skárra en að taka kúna.

Jón:Ho ekki verður þú vændur um að vera fatlaður á hagmennskuhandlegg.
Freyr: Hvorki fæ ég nú strengi né krampa af þessu skjálfri sem heyrist hér ég held að ég fari bara og nagi þennan sviðakjamma þar til ég kafna og snarblessuð sé minning mín.
Spindill: Jæja þetta fór eins og forðum í sögunnni um Hanskann og Grétu hún er til í bjúga og jafning þannig að ég kveð og fer yndir vegg að koma mínum velvilja fram.
Guðríður: Ekki væri það á háaloft komið ef þú kæmir með erfðasynd úr þessu fylleríssprelli þínu þá fer það afsprengi bein leið úr dalnum til handalausra ég kæri mig ekki um neitt sifjasprell í spenastaðasókninni.
Freyr: Útundir bláhimni blíðsumarhelvíti er farinn suðrundir að sleikja gaddavír verði hún ykkur aldurtila þessi líka skemmtanin.

Endieinn 

 

Heimsóknir
Í dag:  24  Alls: 117521
Arnar Þorvarðarson
msn addisneid@hotmail.com Sími.6658295