Var að koma heim,búinn að steypibaðast og sit nú í myrkrinu og drekk öl.
Ég er að hlusta á diskinn úr kvikmyndinni In to the wild þarsem Eddie Vedder sér um tónlistina og ég get ekki annað en vorkennt þeim fjölmörgu mönnum sem ég þekki og þola ekki tónlist hans,þvílík myljandi snilld sem þessi diskur er.
Ég var andvaka í nótt sem leið og þá laust í höfuð mitt skáldsagnarpersóna sem ég ætla aðeins að segja frá og ég veit ekkert hvort ég skrifi eitthvað meira um hana í ókominni framtíð.
Sigga sæta úr Suðursveitinni.
Sigurlaug Jónsdóttir heitir ungfrúin og er alin upp í Suðursveit og ekki getur sá sem þetta ritar vitnað um hvort hún er skyld meistara Þórbergi.
Sigga er 20 ára og er nýflutt í höfuðborgina þarsem hún hyggst leggja stund á íslenskunám við Háskóla Íslands,hún leigir íbúð með vinkonu sinni úr námi sínu við framhaldsskóla Austur Skaftafellssýslu.
Nú hér á eftir ætla að ég að segja frá fyrstu galeiðuferð siggu þarsem hún fór með vinkonu sinni á knæpu er heitir Apótek.
Þessi samtöl sem á eftir fara eru um klukkan tvö aðfaranótt Laugardags.
Það skal kannski fyrst tekið fram að fegurð siggu er svo mikil að helstu töffarar falla í stafi er þeir sjá hana,hún er svo falleg af náttúrunnar hendi að það mætti halda að hún væri afkvæmi Almannagjáar og Dettifoss.
En af samtölum áðurnefndu,þær sitja tvær og drekka bjór í rólegheitum þegar sólbrúnn töffari dembir sér niður á stól við hliðina á okkar konu.
Töffari: Hvað segir gellan? nokkuð spræk?
Sigga: Jú þakka þér ég er ágætlega sett.
Töffari: (segir lágt en svalt)hvað segir þú um að kíkja í íbúð kallsins þarsem ég skal leyfa þér að njóta alvöru karlmanns?.
Sigga: Nei nú dámar mér,heyrir þú þetta jóna? bévítans strákgemlingurinn er að sverma fyrir mér,ég get nú sagt þér það sprjátungurinn minn að ég gæti aldrei gert mér dælt við þessumlíkt útlítandi manni eins og þér,með fráhneppta skyrtuna,iss það kæmi mér ekki á óvart þó þú fengi bæði kvef og kýlapestir í þessari næturfrostatíð.
Og þessi keðjugarmur sem hangir um óeðlilega dökkan háls þinn,þú ert líkari kjölturakka sem þarf að binda við staur en biðlara,nei takk engar kenndir frá mér pent takk.
Töffari: stamar eitthvað og fer.
Ekki líður á löngu þangað til annar piltur þemur að borðinu sá er ævintýranlega mikið við skál og er hálf þvoglumæltur kallanginn.
Drukkinn drengur:Hvað segist eru gellur bara einar og enginn kall að passa upp á þær?.
Sigga

hlær) nei enginn varðmaður í för með okkur stútúngsstúlkum,en ekki sýnist mér á þér að þú værir beysinn í það hlutverkið,það er öngvu líkara en að þú hafir farið heldur djúpt í gambratunnuna og kneift líkt og Sigurður á Galdarstöðum í Froshálsgöngunum.
Nei ungi maður ég held að þú ættir að fara að ráði föður míns og skottast heim hella uppá gulan Braga og demba í þig einum lítra eða svo með rjómaslefi og dágóðum sykri.
Drukkinn drengur fer.....
Javier: kominn með tiltla á tvær metsölusjálfshjálparbækur Karlar eru frá Mars og Konur eru frá Raufarhöfn...Karlmenn kunna ekki að bakka í stæði og konur eru Geimverur