31.01.2007 10:03:48 / addiþ
Dagur víns og rósa.....eða ekki.
Vaknaði níu,gaman að vakna snemma þegar maður getur loks sofið á
sínu græna að vild.
En það verður að gera gott úr því eins og öðru.
Fór á Players í gær og horfði annars vegar á íslendinga berjast vel
og rétt tapa fyrir djeflinum danska og hins vegar Liverpool koma
Björgólfi miljarði til að vökna um augu.
Annars er margt í óvissunni vegna þessa uppboðs á íbúð og veit ég
eigi hvað á til bragðs að taka.
Rafmagnið er þó komið á og það er viss sigur.
Best að henda í vél.
Kveðjur bestu.
Javier: Og svo og svo ljúfurinn hann er farinn út að skemmta
sér.
»
30.01.2007 12:01:09 / addiþ
Kominn heim í langþráða fríið.
Sit á kaffihúsi með tölvuna þar sem rafmagnslaust er á seljaveginum
og allt að verða ónýtt í ísskáp t.d.
Þetta er valkostur sem maður metur vel eftir svona langa
útiveru,þ.e.a.s að sitja á kaffihúsi og heyra á tal ókunnuga og
tjilla bara með öll lífsins þægindi.
Það er verið að fara að bjóða upp íbúðina og ég veit ekkert hvað
gerist í framhaldinu,verður bara að koma í ljós það þýðir ekkert að
fara í rúmið yfir einhverju svona rugli sem maður getur ekkert gert
í.
Annars er það eitthvað sem maður verður eiginlega að gera að
lífsmottói að hunsa alveg rugl og dynti annarra og halda bara sínum
haus og striki.
Stefnan er tekin á langþráð og gott fyllerí um helgina komandi.
Jæja gott í bili.
Javier: Geggjun og gamansemi með smá döss af gallsteinasmjeri
»
03.01.2007 13:23:44 / addiþ
Já.
Þá er komið nýtt ár með tilheyrandi
janúarspennufallsþunglyndissparsemisinnilokun.
Ég er samt að hugsa um að fara bara á hafið klukkan 1600 í dag.
Það er ekki auðvelt fyrir svona vitleysing eins og mig að renna
yfir síðasta ár.
En það er eins og mig minni að það hafi bara verið stórfínt fyrir
utan eitt og eitt tilfelli.
Fór til Danmörku,Frakklands og Spánar og eyddi samanlagt 24 dögum í
útlöndum og það finnst mér alveg lágmark, stefni á að halda því
markmiði í framtíð.
Alveg staðráðinn í að fara á roskilde í fyrsta sinn þetta árið.
Ég held að það styttist óðum í að það komist á internetsamband á
skipinu og það verður enginn smá munur,bara að horfa á fréttir og
ná að fylgjast með öllu.
Annars bara bless í mánuð.
Javier : Atriðið með jóni gnarr um skrifstofumanninn sem semur
texta Sigurrósar er það langfyndnasta sem hefur komið í skaupi fyrr
og síðar
»