Can i play with madness?

03.10.2008 17:38:28 / addiþ

Neyðin og sneiðin

Neyðin kennir naktri konu að spinna,þetta þekkja allir það kannast hins vegar fáir við orðatiltækið sneiðin kennir naktri konu að spinna enda er það bara eitthvað sem mig dreymir um.
Kreppan hefur gert það að verkum að ég versla allar nauðsynjar í grísabúðinni hans jóa og rýni eins og hagsýn mella á öll verð.
Euroshopper er vöruheiti sem er á mörgum vörutegundum í þessari búð og keypti ég mér t.d kornfleks sem var afspyrnubragðlaust um daginn,svona í framhjáhlaupi þá verð ég að segja frá því þegar ég var eitt sinn að spjalla við Árna Tedda í Strax um árið og hann sagði mér að Extra vörurnar sem eru þeirra ódýra vörumerki væru allar gerðar úr sama efninu,kexið þvottaduftið,pastað og alltsaman barasta.
Í seinustu verslunarferð minni keypti ég Euroshopper shampoo (er ekki með neitt hár og geri engar kröfur) sem ég svo afmeyjaði áðan og lyktin af þessu helvíti er alls ekki góð og virknin engin.
En ég held tryggð við þetta vörumerki áfram þetta er það eina sem kemur til greina í kreppunni.

Javier: Ég vona að ég þurfi ekki að elda gullfiskana

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  18  Alls: 117113
Arnar Þorvarðarson
msn addisneid@hotmail.com Sími.6658295