11.10.2008 13:02:02 / addiþ
Fernando Torres og Bósi Ljósár
Jæja þá hefur fjölgað um tvo í kjallaranum á Hringbraut,Bósi Ljósár og Fernando Torres hafa komið sér fyrir og synda í hringi okkur til gleði og yndisauka.
Það er kannski frekar auðvelt að giska á hver okkar kom með hvaða nafn.
Annars höfum við verið á fullu að þrífa og græja og eigum von á gesti í mat,þó ekki Gesti pabba Söra.
Ég held að það sé best að tækla öll landsins vandamál þannig að fylgjast sem minnst með,en ég er því miður of pólitískur til þess og fer því alltaf með allar fréttir sem ég næ í í rekkju á kvöldin.
En það er mitt val.
Jæja næsta mál á dagskrá er að fara í Melabúð og gefa Morris að borða í leiðinni,mikil ábyrgð á meðlimum dýraríkis þessa helgina.
Nú er fyrir öllu að menn láti sér þykja vænt um hvorn annann og knúsist í óhófi.
Ég mæli að lokum með að allir horfi á nýja South Park þáttinn hann getur klárlega bjargað geðheilsunni.
Javier: legg til að menn sniðgangi te með öllu til að mótmæla Bresku vondu köllunum.