28.02.2009 23:05:39 / addiþ
Með tólið stíft og tek um þig
Þú tekur fallega um mig
Og með fallegu skítaglotti
þú smellir á mig totti
Allt meinhægt á vesturbakkanum er hérna í easy fíling með flóka sofandi og er frekar órólegur eitthvað,væri til í að vera fagna afmæli ölsins.
Javier: sjúgðu
»
16.02.2009 19:03:10 / addiþ
Er svo geypiglaður þessa dagana að ég er farinn að minna á sértrúarsöfnuð..ákalla samt enga guði nema kannski Torres við og við.
Stundum ganga hlutirnir eins og í sögu og mér finnst eins og allar fréttir sem ég fæ þessa dagana séu góðar (fyrir utan bevítans sektina á bílnum mínum í gær).
Við erum búnir að vera án sjónvarpsútsendinga í viku og ég get hreinlega ekki sagt að ég sakni þess,eina efnið sem ég virkilega verð að sjá eru leikir með Liverpool og það er séns á að ég nái þeim nú ekki öllum vegna leikstarfa en það verður að hafa það.
Annars var þetta mjög ánægjuleg helgi með Flóka litla þó svo að ég hafi ekki farið á sýninguna hjá nafna hans,geri það bara síðar.
Er að spá í að henda inn eins og einni sögu bráðlega víst að ég er orðinn virkur hér aftur.
bless á meðan....
Javier: þetta er nú of væmið fyrir minn smekk...er maðurinn genginn úr göflum
»
15.02.2009 12:48:56 / addiþ
Það hefur verið ákveðið af kreppuráði sem ég skipa einn að breyta orðatiltækinu gull og grænir skógar í ull og grænar baunir.
Meinhægur Sunnudagur með miklu af kaffi....
Javier: oft veltir þung kona feitum rassi
»
13.02.2009 17:39:18 / addiþ
Ég sá tvo svertingja með minna en tíu metra millibili áðan og svo sá ég mann sem kinkaði kollinum að óþarfa mjög reglulega..og þetta á Föstudeginum 13. ég veit bara ekki hvað ég á að halda.
Annars er ég meinhægur var að koma hjem úr vinnunni og er að hlusta á angurværð Cave og bíð eftir að fá Tristan Flóka í kot.
Verður gaman að fara með hann á listasýningu með manninum sem hann er nefndur eftir um helgina.
Annars stefni ég einnig á það óhræsiapparat sem Ikea er sem þeir ákváðu allt í einu að kalla ikea í staðinn fyrir Íkea um jólin.
Guð veri með ykkur lömbin mín græn og blá.
Javier: mig langar nú bara að snýta mér í krullurnar á Dabba sko
»
12.02.2009 18:39:43 / addiþ
Ég hefi ákveðið eftir að fjöldi fólks hefir komið að máli við monsjörinn (ein manneskja er reyndar það rétta) að byrja að ritlast hér ögn,lofa nú öngvum stórtökum en hér er gott að vera.
Hef nýverið ákveðið eftir ráðfæringar við sjálfan mig og ástand í efnahags og holdafars málum að byrja að lepja skyr úr skel,og því gekk ég niður á Ægissíðu og náði mér í forláta skel sem ég lep úr.
Nenni samt ekki að tjá mig um pólitík því að það gæti endað með málsóknum og eineltum.
Ég er genginn í Hugleik formlega og er að reyna að brjóta af mér þá skel að geta ekki tjáð mig nema með stamleika og Þurrkublettum í hálsi...gæti tekið tíma en hvert haft sem fer er sigur.
Annars er það að frétta að ég er ánægður og glaður þessa dagana sem er nýlunda og þar spilar margt inn.
Ég ætla nú ekki að sprengja mig svona í fyrstu færslu og segi því stopp...og hleypi Javier að.
Javier: djöfulsins asni er þessi maður að halda mér frá netheimum er að spá í að slíta af honum hásin og eta í kvöldmat...
»
18.12.2008 18:06:53 / addiþ
Noh.
Bara að koma jól þrátt fyrir allar kreppur og holskeflur.
Verð með ltila dreng um jólin og það veldur gleði í hjarta mínu.
Annars er ekki mikið tíðinda á Hringbraut 53,lífið gengur sinn gang án mikilla tíðinda svosem.
Nú eru menn að hvetja fólk til að gefa gömlu gsm símana sína til þróunarlandana!
Get ímyndað mér samtölin.
blámaður1... Hvað á að borða
blámaður 2...flugur
annað samtal.
blámaður 1...hvernig ertu í eyðninni
blámaður 2...ágætur en þú
blámaður 1..ég klófesti malaríu í gær þannig að ég verð að sleppa því að mæta í galdrabrennuna.
þriðja
blámaður 1...djöfull er ég svangur.
blámaður 2...ég sá gazelluhræ vesturyndir ég held að það sé smá eftir ef þú drífur þig.
blámaður 1..já sendi sms ef það er fyrir tvo
Hef ákveðið að ganga í leikfélag og er það vel.
KV snæden og Javier
»
05.12.2008 18:18:05 / addiþ
Já svo breggðast krosstré sem aðra hríslur bibbi minn ég hef ekki sökum anna (Snæbjörns?) á smettisskruddunni sívinsælu vart litið á þetta þarfaverk sem bloggasíða þessi er.
Ég hef í högum mínum öngvu breytt á þessum tíma sem vanræksla hefur átt sér stað,er ennþá ógiftur og barnlítill.
Ég fékk ákúrur frá bibba síðast þegar ég talaði um pólitík og hef ég því ákveðið að láta þá kverúlanta og mjálmara sem stjórna þessu bananalýðveldi algerlega óáreitta hér.
En nú líður senn að jólum og þá ber að gleðjast og finna til jólaandans sem oft á tíðum breytist nú snögglega í vínandi eins og þegar arabaafturgangan breytti vatni í vín.
Alveg merkilega ágæt þessi jól sem ég er með Flóka en ekki alveg eins góð þegar ég er ekki með hann,ég hef því ákveðið að halda næstu jól á facebook og fá mér ristað og gin.
Nú er Föstudagur og ég er með vinnu og því ber að fagna með því að taka nokkur kvissin og ef allt gengur eins og sússi planaði þá fer ég á Akranes á morgun að sjá Hálfvitana spila.
Javier: meiri guðsvolaði auminginn þessi sneiðingur
»
20.10.2008 17:17:37 / addiþ
Frumraun mín öfugu megin við barinn gekk eins og í sögu á Föstudaginn,pumpaði 80 lítrum af þeim gula á tveimur tímum og setti nokkra ofan í mig að sjálfsögðu.
Eftir það lá leið á Grand þarsem ég sá Flosa spila Purkinn og er það í annað sinn sem ég sé það og það var ekki síðra í seinna skiptið.
Atburðarás næturinnar á Hringbrautinni gætu vel verið skrifaðar af Cohen bræðrum og ég vona að ég nái að koma þeim í kvikmynd einn daginn,þar spilaði saman ofurölvun,vatn og tilviljanir.
Laugardagskveldinu var eytt fyrir framan sjónkann og sá ég m.a nýja south park og varð fyrir miklum vonbrigðum þarsem titill þáttarins lofaði svo góðu.
Skomberuðum við Gums svo á Reykjavík Rotterdam í gærkveldi og ég verð að segja að þessi mynd er alger snilld,skil ekki hvernig hún getur verið að fá misjafna dóma,frábærlega vel skrifað handrit og vel leikin.
Ég las þá frétt á Vísi í gær að Albinóar í Tansaníu eiga yndir höggið að sækja sökum þess að útlimir þeirra þykja góðir til að brugga seyði og af því seyði eiga menn að verða ríkir m.a,ég vona innilega að þetta nái ekki fótfestu hér á landi og menn fari að murka lífið úr þeim fáu albinóum sem hér búa.
En það má ekki útiloka neitt á þessum síðstu og verstu.
Jæja best að fara að gera ekki neitt,ég er að verða góður kandidat í landslið þeirra sem gera ekki neitt.
Javier: Gunni passaðu þig!
»
11.10.2008 13:02:02 / addiþ
Jæja þá hefur fjölgað um tvo í kjallaranum á Hringbraut,Bósi Ljósár og Fernando Torres hafa komið sér fyrir og synda í hringi okkur til gleði og yndisauka.
Það er kannski frekar auðvelt að giska á hver okkar kom með hvaða nafn.
Annars höfum við verið á fullu að þrífa og græja og eigum von á gesti í mat,þó ekki Gesti pabba Söra.
Ég held að það sé best að tækla öll landsins vandamál þannig að fylgjast sem minnst með,en ég er því miður of pólitískur til þess og fer því alltaf með allar fréttir sem ég næ í í rekkju á kvöldin.
En það er mitt val.
Jæja næsta mál á dagskrá er að fara í Melabúð og gefa Morris að borða í leiðinni,mikil ábyrgð á meðlimum dýraríkis þessa helgina.
Nú er fyrir öllu að menn láti sér þykja vænt um hvorn annann og knúsist í óhófi.
Ég mæli að lokum með að allir horfi á nýja South Park þáttinn hann getur klárlega bjargað geðheilsunni.
Javier: legg til að menn sniðgangi te með öllu til að mótmæla Bresku vondu köllunum.
»
07.10.2008 20:43:37 / addiþ
Nú er Geðdeild Landspítalans í vðbragðsstöðu til að taka á móti fólki sem hefur lent undir í peningaplottinu,það gæti aukið verulega ásóknina þangað hinn nýji þáttur Skjás eins Singing Bee.
Hér eru mínar tillögur til betrunar á þættinum.
Skipta Jónsa út fyrir riðuveika rollu,hún er skemmtilegri og fyndnari.
Hafa alla allsbera.
Spila bara Rage against the machine og Iron Maiden.
Þeir sem tapa eru drepnir.
Javier: Kallakaffi var konfekt við hliðina á þessum hroðbjóði
»
03.10.2008 17:38:28 / addiþ
Neyðin kennir naktri konu að spinna,þetta þekkja allir það kannast hins vegar fáir við orðatiltækið sneiðin kennir naktri konu að spinna enda er það bara eitthvað sem mig dreymir um.
Kreppan hefur gert það að verkum að ég versla allar nauðsynjar í grísabúðinni hans jóa og rýni eins og hagsýn mella á öll verð.
Euroshopper er vöruheiti sem er á mörgum vörutegundum í þessari búð og keypti ég mér t.d kornfleks sem var afspyrnubragðlaust um daginn,svona í framhjáhlaupi þá verð ég að segja frá því þegar ég var eitt sinn að spjalla við Árna Tedda í Strax um árið og hann sagði mér að Extra vörurnar sem eru þeirra ódýra vörumerki væru allar gerðar úr sama efninu,kexið þvottaduftið,pastað og alltsaman barasta.
Í seinustu verslunarferð minni keypti ég Euroshopper shampoo (er ekki með neitt hár og geri engar kröfur) sem ég svo afmeyjaði áðan og lyktin af þessu helvíti er alls ekki góð og virknin engin.
En ég held tryggð við þetta vörumerki áfram þetta er það eina sem kemur til greina í kreppunni.
Javier: Ég vona að ég þurfi ekki að elda gullfiskana
»
02.10.2008 18:00:26 / addiþ
Í þessum hagfræðihörmungum sem nú ríða húsum þá koma fyrir í fréttum allskonar orð og hugtök sem ég hreinlega skil ekki og hef í raun ekki snefil af áhuga á að vita neitt hvað þetta þýðir.
Í rökræðum langskólamenntaðara sperðla sem ég hefi oft heyrt í gegnum árin hafa oft komið fram orð sem ég skil ekki og ég hlusta bara og hugsa með mér,ég er vitlaus.
Hvað í andskotanum er kverúlant t.d eða cand mag ?.
Það er að koma helgi sem ég hyggst brúka sem rólyndis.
Ég fékk mér gullfiskabúr í dag og nú ætla ég að bíða eftir drengnum og fara þá að kaupa tvo fiska og fjársjóðskistu og svona.
Javier: vöruskiptajöfnuðurinn getur velt á stað hagvaxtarkreppu og ávötunarkrafan farið úr jafnvægi.
»
30.09.2008 15:30:03 / addiþ
Myljandi djöfulli gott veður,ætla að nota það í að horfa á fótbolta.
Hvað í déskotanum er lufsupeysa samt.
Javier: Er búið að opna skíðalyftuna á Húsavík?
»
29.09.2008 20:33:40 / addiþ
Hvað hafa atburðir síðustu vikna sagt okkur um þá sýn þeirra manna sem aðhyllast kapítalismann ?.
Hvernig hafa mennirnir á ofurlaununum það?
Hvar er ábyrgðin?.
Af hverju láta Íslendingar þennann hroka þessara hagsmunapotara sem Sjálfstæðisflokkurinn er alltaf yfir sig ganga?.
Mennirnir sem hafa ekki getað borgað fólkinu sem sér um börnin okkar og gamla fólkið mannsæmandi laun.
Mennirnir sem koma í hvert viðtalið á fætur öðru með þvílíkum hroka að maður hálf lyppast niður í vanmætti gegn valdi þessara manna.
Það þýðir ekki að segja bara að þetta sé út af einhverjum viðskiptum í Bandaríkjunum að kenna,Bandaríkjunum þarsem mekka Kapitalismans er.
Við hefðum getað verið mun betur búin undir þetta.
Almúganum blæðir eftir fyllerí þessa manna,þeir gáfu bankana,þeir gáfu Símann og þeir drekktu fólkinu í landinu í skuldir með lánafylleríi.
Og svo kemur Guðni bara keikur í hvert viðtalið á fætur öðru,maðurinn sem á stóran hlut í þessu.
Ég held að menn ættu að fara varlega í framtíðinni að gera grín af öllu sem VG talar um,ég get ekki séð að þessi svokallaða hægri stefna sé að gera okkur gott.
Javier: Guðni ætti bara að stofna Samvinnubankann og redda þessu öllu saman
»
26.09.2008 17:18:09 / addiþ
Hví? og hver?og hvurs? og hvað?.
Hér gerist ekki margt verð ég að segja jafnvel þó að síðuspindill lofi bótum og betrun,tja heyr á helvíti.
Pabbahelgi og feðgar eru að horfa á einhvern bát sem flýgur og stefna rólegheitahelgi eins og ávallt og eina sem er á stefnuskrá er bíóferð sem verður að fara fram á hvíldardaginn heilaga því boltinn hinn enski er á morgun.
Ég geri nánast ekkert þessa dagana og svo ég vitni í Guðmund " ef ég geri nokkuð þá geri ég það ekki vel."
Þess vegna er kannski lítið ritlað eða hvað? ég hef nú yfirleitt ekki átt í trafölum að skrifa einhverja vitleysu en eitthvað heftir þessi dægrin.
Ég fór í útkeyrslu í vinnunni í dag í fyrsta skipti síðan í vor og það var geypigott og gaman enda er það yfirleitt mikil upplifun að eiga við verlunarstarfsmenn hina ýmsu.
Hápunkturinn verður þó að teljast það sem ég sá "graffað" á hurð eina í móttöku Hagkaupa í Kringlunni,þar var heimspekileg og djúphugsuð ádeila "graffara" sem ég féll í stafi yfir,nú.. ef ég væri jafntæknivæddur og Andri Valur þá myndi ég setja inn myndina sem ég tók á símann minn en þið verðið að gera ykkur gott að lesa þessa ódauðlegu speki hér.
Á hurðinni stóð.......BAUGUR
KÚKUR
Góða helgi...
Javier: Ragnar mig langar svo að berja þig
»
Síður:
1 2 3 ...
29